Beint í efni

Um Lyfjafræðisafnið

Lyfjafræðisafnið 

Sími: 868 4344

Netfangpharmmus@internet.is  

Póstfang: Lyfjafræðisafnið, Safnatröð 3, 170 Seltjarnarnesi 

Lyfjafræðisafnið er opið frá 17. júní til 13. ágúst á laugardögum og sunnudögum frá kl. 13.00 til kl. 17.00 og á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi.

Upphaf Lyfjafræðisafnsins

Lyfjafræðisafnið var formlega stofnað í apríl 1985. Um þetta leyti urðu stórstígar breytingar í íslenskum apótekum. Lyfjaframleiðsla í apótekum var að líða undir lok og því var mikið af tækjum og munum, sem ekki voru lengur í notkun. Nokkrir lyfjafræðingar höfðu haldið til haga ýmsum hlutum, en 1978 var stofnuð nefnd innan Lyfjafræðingafélags Íslands og Apótekarafélags Íslands til að safna minjum tengdum lyfjafræði.

Fyrsta verkefnið var að huga að húsnæði fyrir safnið. Við eftirgrennslan kom í ljós að fjósið sem tilheyrði Nesstofu var falt og var það talinn álitlegur kostur. Gengið var frá kaupsamningi haustið 1986 og með samstilltu átaki lyfjafræðinga og lyfjafyrirtækja tókst að eignast húsið og endurbyggja það. Lyfjafræðingar unnu mikla sjálfboðavinnu við húsbygginguna og uppsetningu safnsins.

Að öðrum ólöstuðum er það trúlega Ingibjörg Böðvarsdóttir, sem á stærstan þátt í uppbyggingu safnsins ásamt Áslaugu Hafliðadóttur, Axel Sigurðssyni, Kristínu Einarsdóttur og Sverri Magnússyni, sem öll sátu í undirbúningsnefndinni og fyrstu stjórn safnsins.

Hlutverk og markmið

Lyfjafræðisafnið hefur safnað bæði munum, myndum, bókum og skjölum, sem tengjast sögu lyfjafræðinnar og stefnt er að áframhaldandi söfnun. Í safninu eru til sýnis helstu tæki, sem notuð hafa verið til lyfjagerðar,  þó er stærsti  hlutinn frá fyrri hluta síðustu aldar. Einnig eru í safninu sýnishorn af apóteksinnréttingum frá fyrstu tugum síðustu aldar.

Lyfjafræðisafnið er sjálfseignarstofnun í tengslum við Lyfjafræðingafélag Íslands. Í stjórn safnsins eru lyfjafræðingar, kosnir á aðalfundi Lyfjafræðingafélagsins til fjögurra ára í senn. Safnhúsið er skuldlaus eign allra lyfjafræðinga á Íslandi. Safnið starfar samkvæmt skipulagsskrá fyrir Lyfjafræðisafnið.

Núverandi stjórn safnsins er skipuð sex lyfjafræðingum, sem hittast vikulega og vinna við flokkun og skráningu safnmuna. Stjórnina skipa Brynhildur Briem, formaður stjórnar, Finnbogi Rútur Hálfdanarson, varaformaður, Guðlaug Björg Björnsdóttir, ritari, Sigurður Traustason, gjaldkeri og Smári Björgvinsson. Varamaður er Vigfús Guðmundsson. Hollvinir safnsins eru Guðfinna Guðmundsdóttir, Halldóra Ásgeirsdóttir, Hildigunnur Hlíðar, Kristín Einarsdóttir, Mímir Arnórsson, Sigríður Siemsen og Þorbjörg Kjartansdóttir.

Safnið er opið almenningi á laugardögum og sunnudögum kl 13:00 til kl 17:00 frá miðjum júní til miðs ágúst ( sjá nánar hér að framan ). Utan þess tíma er tekið á móti hópum skv. samkomulagi.