
Verklagsreglur orlofssjóðs uppfærðar
18. febrúar 2026
Stjórn Orlofssjóðs LFÍ hefur samþykkt uppfærðar verklagsreglur sem taka gildi í febrúar 2026. Markmið uppfærslunnar er að auka skýrleika, gagnsæi og jafnræði í úthlutunum og þjónustu sjóðsins.
Reglurnar kveða m.a. nánar á um punktasöfnun og punktanýtingu, fyrirkomulag úthlutana orlofshúsa og greiðslufyrirkomulag. Einnig eru skýr ákvæði um afpantanir og endurgreiðslur, þar á meðal vegna veikinda og óviðráðanlegra aðstæðna. Áhersla er lögð á ábyrgð sjóðfélaga, umgengni og persónuvernd. Markmiðið er að tryggja skilvirka og sanngjarna stjórnsýslu í þágu félagsmanna. Reglurnar eru birtar í heild á heimasíðu LFÍ og hvetjum við sjóðfélaga til að kynna sér þær vel.
Dagsetning
18. febrúar 2026Deila