
Staða lyfjaskírteina fer í miðlæga lyfjakortið
6. febrúar 2025
LFÍ óskaði eftir því í ágúst 2024 að sjúkratryggingar Íslands gæfu lyfjafræðingum bættari aðgang að upplýsingum um lyfjaskírteini til þess að minnka líkur á meðferðarrofi og bæta þjónustu við sjúklinga. Kröfur LFÍ voru að
- Að öll lyfjaskírteini yrðu aðgengileg á sjukra.is (svipað og fyrir methylphenidate)
- Að aðgengilegt yrði hvort umsókn um skírteini hefði borist eða ekki (og þannig séð ef henni hefur verið hafnað)
LFÍ setti sig aftur í samband við SÍ í upphaf árs sökum þess að ekkert hafði heyrst frá SÍ um stöðu mála. Lyfjafræðingar lenda ítrekað í að þurfa að hjálpa einstaklingum sem ekki skilja hvers vegna lyfjaskírteini hefur ekki verið samþykkt. Í ákveðnum tilfellum klikkar eitthvað í ferlinu hjá lækninum og til að aðstoða sjúklinginn vilja lyfjafræðingar geta séð stöðu skírteinis. Því eins og gefur að skilja þá eru einstaka tilfelli þar sem hætta er á meðferðarrofi. LFÍ hefur fengið heimild til að bita þennan textabút úr tölupóstssamskiptum milli aðstoðarsviðsstjóra SÍ og formanns LFÍ
"Það er rétt að núverandi aðgangur (lyfjafræðinga að sjukra.is) er óbreyttur. Ástæða þess er að Sjúkratryggingar hafa verið að vinna með Embætti Landlæknis að gera allar lyfjaskírteinis upplýsingar aðgengilegar í nýja miðlæga lyfjakortinu sem er verið að innleiða. Þar verður sem sagt hægt að sjá öll gild lyfjaskírteini fyrir þann sjúkling sem verið er að afgreiða ásamt því að unnt verður að sjá hvort að viðkomandi sé með útrunnið lyfjaskírteini fyrir ákveðið lyf eða hvort að umsókn um lyfjaskírteini sé í vinnslu hjá Sjúkratryggingum. Þannig verður á einum stað hægt að sjá allar nauðsynlegar upplýsingar um lyfjamál þess einstaklings sem verið er að veita þjónustu í apótekinu, í stað þess að þurfa að vera að fara á milli 2ja til 3ja kerfa, hvert með sína gátt til að skrá sig inn á.
Þetta eru frábærar fréttir og geta lyfjafræðingar beðið spenntir eftir miðlæga lyfjakortinu