Beint í efni

Öryggis/sjálfsvarnarnámskeið LFÍ

8. maí 2024

Í samvinnu við Þitt öryggi hélt LFÍ öryggis/sjálfsvarnarnámskeið fyrir lyfjafræðinga LFÍ. Námskeiðið var haldið till að bregðast við kalli lyfjafræðinga um samtal er varðar rán í Lyfjabúðum.

Farið var yfir áhættumat á vinnustöðum og uppsetning á verkferlum. Einnig var farið yfir tilgang sjálfsvarnar en hún snýst í meginmarkmiðum út á að koma sér útúr aðstæðum.

Bent var á að ef ferlar eru ekki til staðar fyrir viðbrögð gegn ráni getur vinnustaður verið bótaskyldur lendi Lyfjafræðingur í atviki (sbr. Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum).

Til þess að átta sig á þróuninni á Íslandi bað LFÍ um gögn frá Lyfjastofnun sem býr yfir upplýsingum um fjölda rána á Íslandi síðustu 5 ára (sjá að neðan) og þar kemur fram að tilvik rána og innbrota eru of fá til að draga ályktanir um þróun. Lyfjabúðir hafa gripið til ýmissa fyrirbyggjandi aðgerða til að lágmarka hættu á innbrotum.

Hópurinn sem var samankominn var fámennur en góðmennur og gafst mikill tími í umræður um öryggi á vinnustað og hvernig hægt er að gera betur. Ef áhugi er til staðar er möguleiki á öðru námskeiði í haust en hafa má samband við lfi hér að neðan til að senda inn fyrirspurn.

Dagsetning
8. maí 2024
Deila