
Niðurgangur og hægðatregða
4. febrúar 2025
Þrusumæting var á fræðslufund LFÍ um lyf sem geta haft áhrif á hægðir. Þórunn Kristín Guðmundsdóttir sérfræðingur í klínískri lyfjafræði tók saman fræðslu fyrir lyfjafræðinga og fjallaði um neikvæð samfélagsleg áhrif hægðategðu, lyfjaflokka sem geta valdið hægðatregðu og hvaða hægðalyf eru í boði. EInnig var aðeins minnst á gerjaða japanska apríkósu.
Góðar umræður sköpuðust í kringum fyrsta val hægðalyfja með morfín notkun sem og val hægðalyfja fyrir börn.
Upptaka af fundinum var send á alla félagsmenn og ef þú sem félagsmaður hefur ekki verið að fá tölvupósta kíktu á mínar síður og sjáðu hvort rétt email er skráð, ef ekki geturðu haft samband við lfi@lfi.is
Dagsetning
4. febrúar 2025Deila