1ba0135a76.jpg

 

 

 Lyfjafræðisafnið í Nesi

Sími: 561-7100

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  

Póstfang: Lyfjafræðisafnið, Safnatröð 3, 170 Seltjarnarnesi

 

 

 

Lyfjafræðisafnið í Nesi, er opið frá 18. júní til 14. ágúst:  laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.00 til kl. 17.00 og á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi.

 

Upphaf Lyfjafræðisafnsins

Lyfjafræðisafnið var formlega stofnað í apríl 1985. Um þetta leyti urðu stórstígar breytingar í íslenskum apótekum. Lyfjaframleiðsla í apótekum var að líða undir lok og því var mikið af tækjum og munum, sem ekki voru lengur í notkun. Nokkrir lyfjafræðingar höfðu haldið til haga ýmsum hlutum, en 1978 var stofnuð nefnd innan Lyfjafræðingafélags Íslands og Apótekarafélags Íslands til að safna minjum tengdum lyfjafræði.

Fyrsta verkefnið var að huga að húsnæði fyrir safnið. Við eftirgrennslan kom í ljós að fjósið sem tilheyrði Nesstofu var falt og var það talinn álitlegur kostur. Gengið var frá kaupsamningi haustið 1986 og með samstilltu átaki lyfjafræðinga og lyfjafyrirtækja tókst að eignast húsið og endurbyggja það. Lyfjafræðingar unnu mikla sjálfboðavinnu við húsbygginguna og uppsetningu safnsins.

Að öðrum ólöstuðum er það trúlega Ingibjörg Böðvarsdóttir, sem á stærstan þátt í uppbyggingu safnsins ásamt Áslaugu Hafliðadóttur, Axel Sigurðssyni, Kristínu Einarsdóttur og Sverri Magnússyni, sem öll sátu í undirbúningsnefndinni og fyrstu stjórn safnsins.

 

Hlutverk og markmið

Lyfjafræðisafnið hefur safnað bæði munum, myndum, bókum og skjölum, sem tengjast sögu lyfjafræðinnar og stefnt er að áframhaldandi söfnun. Í safninu eru til sýnis helstu tæki, sem notuð hafa verið til lyfjagerðar,  þó er stærsti  hlutinn frá fyrri hluta síðustu aldar. Einnig eru í safninu sýnishorn af apóteksinnréttingum frá fyrstu tugum síðustu aldar.

Lyfjafræðisafnið er sjálfseignarstofnun í tengslum við Lyfjafræðingafélag Íslands. Í stjórn safnsins eru lyfjafræðingar, kosnir á aðalfundi Lyfjafræðingafélagsins til fjögurra ára í senn. Safnhúsið er skuldlaus eign allra lyfjafræðinga á Íslandi. Safnið starfar samkvæmt skipulagsskrá fyrir Lyfjafræðisafnið.

Núverandi stjórn safnsins er skipuð sex lyfjafræðingum, sem hittast vikulega og vinna við flokkun og skráningu safnmuna. Stjórnina skipa Brynhildur Briem, formaður stjórnar, Finnbogi Rútur Hálfdanarson, varaformaður, Guðlaug Björg Björnsdóttir, ritari, Hjördís Claessen og Sigurður Traustason, gjaldkeri. Varamaður er Vigfús Guðmundsson. Hollvinir safnsins eru Guðfinna Guðmundsdóttir, Halldóra Ásgeirsdóttir, Hildigunnur Hlíðar, Kristín Einarsdóttir, Mímir Arnórsson, Sigríður Siemsen og Þorbjörg Kjartansdóttir.

Safnið er opið almenningi frá 19. júní til 15. ágúst ( sjá nánar hér að framan ).