| Um LFÍ |
|---|
|
Hlutverk Lyfjafræðingafélags Íslands er að stuðla að heilbrigði og réttri lyfjanotkun og að stuðla að faglegu starfi alls staðar þar sem lyf koma við sögu. Hlutverk félagsins er einnig að efla þekkingu annarra heilbrigðisstétta og almennings á lyfjafræði og störfum lyfjafræðinga. Félagið gætir hagsmuna og stendur vörð um réttindi félagsmanna, stuðlar að bættum kjörum og aukinni starfsánægju þeirra og eflir samheldni og samstarf meðal lyfjafræðinga. Meira >>
|
| Tekur þú lyf? |
|
|
|
Beinvernd, Frumtök, Hjartaheill og Lyfjafræðingafélag Íslands taka höndum saman:
Greiðsluþátttaka er nú takmarkaðri en áður og ekki er víst að Sjúkra-tryggingar Íslands taki lengur þátt í greiðslu þeirra lyfja sem þú þarft að nota. Markmiðið með þessum breytingum er sparnaður í heilbrigðiskerfinu. Notkun lyfja er stýrt yfir í ódýrasta lyfið í hverjum lyfjaflokki og því ber lækninum þínum að breyta lyfjagjöf þinni til samræmis við nýjar reglur. Fyrir marga skiptir þessi breyting litlu. Lyf innan hvers flokks geta verið mismunandi og misjafnt hvaða lyf hentar hverjum og einum. Til að koma til móts við þann hóp sem af einhverjum ástæðum getur ekki notað ódýrasta lyfið hefur Sjúkratryggingastofnun gefið út leiðbeiningar varðandi útgáfu lyfjaskírteina. Læknirinn þinn getur því sótt um greiðsluþátttöku (lyfjaskírteini) fyrir þau lyf sem þú þarft á að halda:
Ef þú vilt ekki breyta um lyf og færð ekki lyfjaskírteini þá áttu þess alltaf kost að greiða lyfið að fullu.
Til að forðast vandræði skaltu hafa í huga að þú þarft að vera
tímanlega í sambandi við lækninn þinn vegna hugsanlegra breytinga á
lyfjum eða útgáfu lyfjaskírteinis. Ávísuðum lyfjum (skv lyfseðli) má
ekki breyta í apótekum.
Þekkir þú þinn rétt? Færð þú ekki lengur lyfið „þitt“?
Aðrir tenglar vegna lyfjamála:
|
|||||
| Aðalvalmynd | |||||
|---|---|---|---|---|---|
|
| Innskráning |
|---|






