|
Alþjóðasiðareglur lyfjafræðinga,
F.I.P., International Code of Ethics, eru lagðar til grundvallar siðareglum
Lyfjafræðingafélags Íslands.
Siðareglurnar eru ætlaðar lyfjafræðingum til íhugunar og stuðnings í daglegum
störfum.
Lyfjafræðingur starfar að heilbrigðismálum með virðingu fyrir manninum og
lífríkinu.
Starfi lyfjafræðinga fylgir ábyrgð gagnvart einstaklingi og samfélagi.
- Lyfjafræðingur skal rækja starf sitt án
manngreinarálits, bera virðingu fyrir
mismunandi menningarheimum og meðhöndla alla sem leita til þeirra um
þjónustu með kurteisi og virðingu.
- Lyfjafræðingur skal tryggja að öryggi,
velferð og hagsmunir þess sem hann veitir faglega þjónustu séu höfð í fyrirrúmi
og þjónustan sé innt af hendi af heiðarleika.
- Lyfjafræðingi ber að viðhalda faglegri
þekkingu sinni og endurnýja hana.
- Lyfjafræðingur skal virða þagnarskyldu um
alla vitneskju eða grun, sem hann í starfi sínu öðlast um sjúkdóma eða önnur einkamál
skjólstæðinga sinna.
- Lyfjafræðingi ber að rækja starf sitt af
vandvirkni, samviskusemi og trúmennsku.
- Lyfjafræðingur skal ekki taka að sér verk
er skerðir sjálfstæði hans sem lyfjafræðings.
- Lyfjafræðingur skal jafnt í starfi sem í
einkalífi hafa virðingu stéttar sinnar í heiðri.
- Lyfjafræðingur skal virða lög og reglur um
störf lyfjafræðinga og siðareglur lyfjafræðinga.
- Lyfjafræðingur skal virða ákvörðunarrétt
sjúklinga.
- Lyfjafræðingur skal sjá til þess að allar
upplýsingar sem hann veitir almenningi og öðru heilbrigðisstarfsfólki séu
áreiðanlegar, nákvæmar og hlutlausar. Einnig skal tryggja að þeim sé komið til
skila á þann hátt að þær séu auðskiljanlegar.
- Lyfjafræðingi ber að viðhalda
trúnaðartrausti gagnvart heilbrigðisyfirvöldum.
- Lyfjafræðingi ber að vinna með
heilbrigðisstofnunum af sanngirni og jafnræði í viðleitni þeirra til þess að
stuðla að heilsuvernd.
- Lyfjafræðingi ber að rækta samvinnu innan
stéttar sinnar og við aðrar stéttir. Lyfjafræðingur skal leitast við að miðla faglegri þekkingu sinni með þátttöku
í fræðslustarfi.
- Lyfjafræðingur skal leitast við að taka
þátt í störfum félagssamtaka lyfjafræðinga, innlendum sem erlendum, með það að
markmiði að bæta starfsskilyrði stéttarinnar og ímynd hennar.
- Lyfjafræðingi ber að tryggja að öðru
starfsfólki sem falið er að vinna ákveðin verk sem falla undir ábyrgðarsvið
lyfjafræðings hafi fullnægjandi þekkingu og getu til að vinna verkin á
árangurs- og áhrifaríkan hátt.
- Lyfjafræðingur skal tryggja eftir fremsta megni
áframhaldandi faglega þjónustu til sjúklinga þrátt fyrir aðstæður sem stangast
á við persónulegar siðfræðilegar skoðanir eða þegar lokun apóteks á sér
stað. Ef um verkfall er að ræða, skal
lyfjafræðingur tryggja eftir bestu getu að almenningur hafi aðgang að
lyfjafræðilegri þjónustu.
Samþykktar á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 23. mars 2010.
|